Táknsmiðjan ehf. var stofnað í janúar 2009 af Hauki Vilhjálmssyni og Trausta Jóhannessyni. Markmið fyrirtækisins er að bjóða fyrirtækjum, stofnunum, hagsmunarsamtökum, stofnunum og einstaklingum lausn á uppsetningu á heimasíðum eða mynddisk á táknmáli. Stefna fyrirtækisins er að vinna að bættu aðgengi heyrnarlausra að samfélaginu með upplýsingum. Við í Táknsmiðjunni ehf. sérhæfum okkur í þýðingum úr íslensku yfir á táknmáli á móðurmáli heyrnarlausra. Við getum séð um útgáfu fræðsluefnis,forvarnarstarfs og upplýsingefni um ýmis málefni, barnasögur til uppsetningar á vefsjónvarpi eða mynddisk. Hvað er vefsjónvarp? Það er upplýsingar sem eru sendar út á netinu eins og þú sérð á myndskeið hér á heimasíðunni. Við í Táknsmiðjunni ehf. erum ávallt reiðubúin að koma til móts við þarfir þínar, hvort sem þarf að þýða efni úr íslensku á táknmáli eða bent okkur á um skort á upplýsingaefni á táknmáli. Við getum skoðað betur leiðir til bættrar aðgengis að upplýsingum á heimasíðum.



Um okkur

